fimmtudagur, júlí 07, 2005

Bookmark and Share

Jamms, þeir kunna þetta enn, strákarnir


Það er rétt hjá henni Þurý. Það var svaka stuð á Duran Duran tónleikunum. Þeir hafa greinilega engu gleymt, þótt svo að kallabumban sé farin að láta sjá sig.

Síðasta laugardag var sko líka fjör, en í þetta skiptið á Fossum. Það var slegið upp partýtjaldi á túninu og hver tertan á fætur annarri borin út í tjaldið. Þetta varð heljarinnar veisla þar sem megnið af fjölskyldunni mætti á staðinn. Um kvöldið var svo grillað og hin frábæra hljómsveit The Lost Toad spilaði fyrir dansi í tjaldinu. Afmælisbarnið lét sitt ekki eftir liggja og tjúttaði með afkomendunum langt fram á kvöld.

 

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim