þriðjudagur, ágúst 14, 2007

Bookmark and Share

láta gott af sér leiða


það er gott að geta látið gott af sér leiða og styrkt málefni sem þurfa á því að halda. Ásta Laufey Aðalsteinsdóttir (aka Ásta ofurkona)samkennari minn ætlar að hlaupa maraþon (42 km) í Reykjavíkurmaraþoninu og styrkja þar ABC hjálparstarf sem stendur fyrir byggingu skóla fyrir fátæk börn í Pakistan. Eins og margir vita kostaði Borgarholtsskóli og starfsfólk hans byggingu eins skóla í Jaranwala og margir starfsmenn gerðust styrktarforeldrar barna í þeim skóla. Ég vil hvetja alla sem vettlingi geta valdið að heita á hana Ástu með því að fara inn á þessa síðu ( http://www.glitnir.is/Marathon/Aheit/ ). Áheitin miðast við fasta upphæð en ekki þá vegalengd sem Ásta fer.

GO ÁSTA GO....

 

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim