mánudagur, janúar 26, 2009

Bookmark and Share

ég held ég viti


af hverju ég er alltaf svona þreytt, en ég held að ég tjái mig ekki um það hér þar sem ég er fagmanneskja og hef vit á því að blogga ekki um hvað sem er opinberlega!
Mig langar að sofna núna og vakna bara seint í maí...

 

0 Ummæli

föstudagur, janúar 16, 2009

Bookmark and Share

Föstudagsletin


Svo á morgun verður það laugardagsletin, svo sunnudagsletin, mánudagsletin...osfrv. osfrv.
Magnað hvað maður getur verið latur. Hvað er hægt að gera við þessu?

 

0 Ummæli

þriðjudagur, janúar 13, 2009

Bookmark and Share

Hverjir ætla austur á þorrablót?


Ég er satt að segja á báðum áttum...en langar að fara, mömmu og pabba vegna...

 

0 Ummæli

föstudagur, janúar 09, 2009

Bookmark and Share

Nýtt ár, nýtt ár...


já, ef þið hafið ekki tekið eftir því þá er komið nýtt ár!
Á nýju ári er erfitt að vakna klukkan 7. Á þessari önn þarf ég að vakna klukkan 7 fimm daga vikunnar...aumingja kennaragreyið fær ekki að sofa út nema bara um helgar.
Núna er allt komið á fullt skrið í kennslunni. Nemendagreyin sitja sveitt og vinna hörðum höndum að verkefninu sem kennarinn þeirra lagði fyrir. Á meðan situr kennarinn við tölvuna og BLOGGAR!!! Hann svarar spurningum nemendanna þegar þær koma upp og heldur svo áfram að blogga.

Ef hóparnir mínir verða áfram svona góðir og vinnusamir gæti vel verið að ég bloggaði oftar en einu sinni í mánuði...úbbs...ég gleymdi mér aðeins og talaði íslensku við nemanda! Merde Happens.

 

0 Ummæli