miðvikudagur, mars 18, 2009

Bookmark and Share

Fóta- og heilaóeirð


Ætlaði aldrei að sofna í gærkvöldi. Fæturnir að gera mig brjálaða, sem og heilinn, en hann var gjörsamlega á fullu. Það má segja að ég hafi tekið alla nemendahópana með mér í rúmið í gær, því hugurinn var á fleygiferð að upphugsa verkefni fyrir þessi grey. Ég vildi að ég gæti bara slökkt á vinnuheilanum þegar ég kem heim.

 

0 Ummæli

sunnudagur, mars 15, 2009

Bookmark and Share

hvernig í ósköpunum...


komst húskeppur í gluggakistuna í svefnherberginu mínu?!?!?! og það á þessum árstíma. Ég hélt að pöddukvikindin væru enn í vetrardvala. Fyrir þá sem ekki kannast við þetta fyrirbæri þá er þetta ranabjöllutegund sem lítur svona út:

 

0 Ummæli

miðvikudagur, mars 11, 2009

Bookmark and Share

"show must go on"


veit ekki af hverju ég fékk þetta á heilann áðan. Ég er á kafi í ritgerðum og þetta er það sem ómar í hausnum á mér í bakgrunninn. Ég er að klára að fara yfir ritgerðir úr 503 sem ég ætla að reyna að skila til baka á föstudaginn, því þá kemur næsta holskefla af ritgerðum, í þetta sinnið frá 403. Já, mörg er kennarans raunin, en mér finnst þetta samt skemmtilegt starf á heildina litið.

 

0 Ummæli

mánudagur, mars 02, 2009

Bookmark and Share

þvull og bæla


ojá...það er mánudagur...mánudagur til mismæla, var það ekki örugglega þannig?
Orð dagsins í dag í ensku 403 var Altercation (to argue vehemently; a heated quarrel). Elskulegu nemendurnir skrifuðu það samviskusamlega niður og spurðu kennarann (mig) svo hvað það þýddi...kennarinn góði byrjaði að sjálfsögðu á því að útskýra það á ensku og gekk það bara nokkuð vel. En blessuð börnin þurfa líka íslenska þýðingu á orðinu og sagði kennarinn að orðið þýddi "jah, svona rifrildi, þreyta eða dæla". Að sjálfsögðu 'meikaði það ekki mikinn sens' fyrir nemendurna. Kennarinn góði hikaði og hugsaði hvað hann hefði nú sagt..."úbbs...ég meinti þræta eða deila". Mannleg mistök þar sem vöktu mikla kátínu nemendanna.
Að þeirri kennslustund lokinni fer kennarinn í næstu stofu þar sem hinn 403 hópurinn á að vera og að sjálfsögðu fá þau sama orð dagsins. Kennarinn hlær og gerir grín að sjálfum sér og segir þeim frá mismælum sínum í fyrri kennslustund. Svo kemur að því að þýða orðið og einhverra hluta vegna getur kennarinn ekki sagt orðin rétt...hann gerir sömu mistökin aftur!!!

 

0 Ummæli